Hjartans stúlkubarnið okkar hún Sigurlinn fermdist í vor og þar með má hún flauta og drekka kók svona sirka þegar henni sýnist (sjálfsögð réttindi sem fermingarbörn öðlast að mati Ástráðs).
Síðan komu folöldin og lömbin - hvert á fætur öðru - alltaf jafn einstakur tími í sveitinni, vakin og sofin fylgjumst við með þeim komast á legg.
auðvitað var riðið út - um leið og fært var riðum við yfir ánna okkar, yfir í næstu hreppa og kringum fjöll og að miðju hálendisins; afrekuðum að ríða sem sagt í kringum Vörðufell, fara í barnvæna hestaferð inn að Kletti, ríða inn í Arnarfell og síðan fór Ástráður í sína fyrstu fjallferð ásamt með pabba sínum.
En í lok september stigum við foreldrarnir upp í flugvél ásamt fleiri áhugasömum og skoðuðum fjós, traktora, beljur, geitur, mjólkurhús, munka, haughús, osta og drukkum um það bil heimsins besta bjór á árlegum bjórfestivölum í Bæjaralandi.
Ástráður Unnar lauk grunnskólagöngu í vor og hóf nám við Menntaskólann á Laugavatni - þar sem honum líkar einstaklega vel. Hann vann í Búrfelli í sumar við alls kyns gagnleg störf og í jólafríinu sem handlangari við húsbyggingar.
Sigurlinn er nú í 9. bekk í Flúðaskóla og plummar sig bara nokkuð vel - teiknar og teiknar alla daga - og er skynsamari en flestir aðrir í kringum sig.
Magnús Arngrímur leikur við hvern sinn fingur, er farin að fikra sig áfram á píanóinu en er ekki síður duglegur í skólanum.
Hrafnkell er alltaf jafn gallvaskur - er vinamargur og þó að foreldrarnir telji sig nokkuð vana að halda barnaafmæli þá slá hann og jafnaldrar hans öllu við með uppátækjum og gleðilátum.
Kæru vinir og ættingjar nær og fjær - við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum fyrir allt gamalt og gott - minnum á að það er alltaf heitt á könnunni hér í Skarði og við hlökkum til að sjá ykkur öll hvert og eitt.
Jólaknús úr í nóttina.
Siggi
Maggi
Vilborg
Ástráður
Sigurlinn
Hrafnkell





































.jpg)

































