23.12.14

Árið 2014

Komið þið öll margblessuð og sæl

Árið byrjaði í snjó og það endaði í snjó. Ekki svo leiðinlegt fyrir okkur krakkastýrin. 
Við lærum og lesum - leikum og sprellum .. stundum sem við sjálf en stundum sem einhver önnur furðudýr. 
Í apríl fermdist okkar elskulegi sonur og stóri bróðir. Okkur fannst hann vera manna glæsilegastur. 
Maggi varð pínu þreyttur í kirkjunni og var að velta því fyrir sér að leggja sig smá stund en það hafðist nú á endanum að messa og blessa og allir gengu glaðir út í fallegt vorið. 
Hrafnkell hélt uppi stuðinu í hliðarsalnum með frænkum sínum og frændum.
Sigurlinn hin prúða og ljúfa brosti út í annað enda ekki annað hægt í svona stórveislu.
En hún er líka uppátækjasöm og þær blikkuðu saman ljósmyndarann, Sigurlinn og Sigling hennar að loknu góðu reiðnámskeiði. 
Og vorið kom bjart og hlýtt og allir skriðu vel undan vetri. Lömbin og folöldin komu eitt af öðru og eins og alltaf verður maður hugfanginn af þeim. 
Auðvitað var farið í nokkur ferðalög á hestbaki og fáeinar fjallferðir. 

Hreint frábært !
Við gerðum líka svo margt annað skemmtilegt á árinu og við erum endalaust þakklát fyrir stóran hóp af vinum og ættingjum sem við sendum nú okkar allra bestu jólakveðjur !
Vilborg
Siggi
Ástráður
Sigurlinn
Magnús
og 
Hrafnkell