Kæru vinir og fjölskylda,
hér kemur okkar rafræna jólakort.
Þetta er klárlega árið sem allir eiga eftir að minnast vel og vandlega. Líf okkar allra var sett á annan endan og umsnúið svo um munar.
Málið er að hið dags daglega líf okkar hér í Skarði breytist kannski ekki svo mikið - störf okkar, börn og bústofn eru hér til að sinna og það fylgir því mikil gleði.
en korteri eftir - brást á vesen .. öllu lokað og títt um rædd veira setti tilveru okkar allra í uppnám. Við tókum þetta með jákvæðni og pössuðum okkur uppá að hlusta bara á Helga FB í fámennum en afar góðum hóp.
En árstíðir breytast ekki og sem betur fer komu lömbin og vorið ( eða öfugt). og að sjálfsögðu folöldin
Við fórum í árlega hestaferð með börnunum inn að Kletti - alltaf gaman
Í kjölfar fremur stuttrar baráttu við krabbamein lauk æfi Benna frænda. Það er sárt að horfa á eftir góðum frænda og ekki síður góðum vini - því ófáar stundir höfum við átt saman sem tengjast sameiginlegu áhugamáli. Benni og Erna voru nefnilega eins og farfuglarnir - komu á vorin, fluttu úr borginni í Stekk, bönkuðu uppá á og mörg kvöldin áttum við svo góðar stundir saman þar sem spjallað var saman um hrossin, lífið og tilveruna - svo ekki sé minnst á þá fjölmarga úteiðartúra og hestaferðir í gegnum árin.
Eftir heyskap og tilheyrandi annir þá fórum við í hestaferð - mikið góða og eins og alltaf með svo skemmtilegum ferðafélögum. Fjallabak að þessu sinni.
Svo kom haustið með tilheyrandi annríki - við fórum þrjú á fjall - við Ástráður (Vilborg) fórum í fjallsafn og Sigurður í efstirsafn. Það má segja að þetta sé nokkuð mikilvægt atriði í okkar lífi... allavega erum við að velta fyrir okkur að fjölga fjallhrossunum - því Maggi okkar bíður eftir því að komast á fjall og hefur nú þegar samið við fjallkónginn um að fá að fara haust 2021.
Börnin stækka og dafna svo sannarlega
Ástráður stundar nám við Borgarholtsskóla og lærir vélvirkjun, Anna Sigríður (kærasta Ástráðs) stundar nám við menntavísindasvið H.Í., Sigurlinn er á síðasta árinu í Menntaskólanum á Laugarvatni, Magnús fór í 8.bekk í Flúðaskóla og Hrafnkell í 6.bekk í Þjórsárskóla.
(ef að sími og tölva hefðu ekki klikkað á árinu - þá hefðum við af þeim öllum stórgóðar myndir til að sýna).
Ástkær móðir, tengdamamma og amma okkar lést 19. október eftir fremur snarpa og harða baráttu við krabbamein. Maður veit varla hvernig hægt sé að orða þetta vor, sumar og haust - sumt er bara án orða og það eina sem ég kann að segja er ... ,,svona er lífið .. og endalok þess".
Lífið breytist og verður ekki eins og áður - en yljum okkur við minningar.
Við þökkum fyrir auðsýndan hlýhug og samúð af öllu hjarta.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla, friðsældar og friðar um ókomna tíð.
Höldum í minningu horfinna ættingja og vina og tökum brosandi mót hækkandi sól.
kær kveðja úr Skarði
Sigurður
Vilborg
Ástráður
Anna
Sigurlinn
Magnús
Hrafnkell
og
ferfættir vinir.



















