23.12.20

Kæru vinir og fjölskylda,

hér kemur okkar rafræna jólakort.

Þetta er klárlega árið sem allir eiga eftir að minnast vel og vandlega. Líf okkar allra var sett á annan endan og umsnúið svo um munar.   

Málið er að hið dags daglega líf okkar hér í Skarði breytist kannski ekki svo mikið - störf okkar,  börn og bústofn eru hér til að sinna og það fylgir því mikil gleði. 



Lífið var nú þokkalega ljúft í byrjun árs .. skruppum með Magga og Hrafnkel til Edinborgar til að skoða fallegar minjar og leita að uppruna Harry Potter. Sigurlinn skrapp líka á tónleika til Osló til að hlusta á Hatara og Ástráður spilaði bara á píanóið á meðan .. gaf hrossum og nautum að eta. 

en korteri eftir - brást á vesen .. öllu lokað og títt um rædd veira setti tilveru okkar allra í uppnám.  Við tókum þetta með jákvæðni og pössuðum okkur uppá að hlusta bara á Helga FB í fámennum en afar góðum hóp. 

En árstíðir breytast ekki og sem betur fer komu lömbin og vorið ( eða öfugt). 


og að sjálfsögðu folöldin 

Í kjölfar fremur stuttrar baráttu við krabbamein lauk æfi Benna frænda.  Það er sárt að horfa á eftir góðum frænda og ekki síður góðum vini  - því ófáar stundir höfum við átt saman sem tengjast sameiginlegu áhugamáli.  Benni og Erna voru nefnilega eins og farfuglarnir - komu á vorin, fluttu úr borginni í Stekk,  bönkuðu uppá á og mörg kvöldin áttum við svo góðar stundir saman þar sem spjallað var saman um hrossin, lífið og tilveruna - svo ekki sé minnst á þá fjölmarga úteiðartúra og hestaferðir í gegnum árin. 


Við fórum í árlega hestaferð með börnunum inn að Kletti - alltaf gaman 


Eftir heyskap og tilheyrandi annir þá fórum við í hestaferð - mikið góða og eins og alltaf með svo skemmtilegum ferðafélögum.  Fjallabak að þessu sinni. 

Svo kom haustið með tilheyrandi annríki - við fórum þrjú á fjall - við Ástráður (Vilborg) fórum í fjallsafn og Sigurður í efstirsafn. Það má segja að þetta sé nokkuð mikilvægt atriði í okkar lífi... allavega erum við að velta fyrir okkur að fjölga fjallhrossunum  - því Maggi okkar bíður eftir því að komast á fjall og hefur nú þegar samið við fjallkónginn um að fá að fara haust 2021. 

Börnin stækka og dafna svo sannarlega
Ástráður stundar nám við Borgarholtsskóla og lærir vélvirkjun, Anna Sigríður (kærasta Ástráðs)  stundar nám við menntavísindasvið H.Í., Sigurlinn er á síðasta árinu í Menntaskólanum á Laugarvatni, Magnús fór í 8.bekk í Flúðaskóla og Hrafnkell í 6.bekk í Þjórsárskóla.  
(ef að sími og tölva hefðu ekki klikkað á árinu - þá hefðum við af þeim öllum stórgóðar myndir til að sýna). 

Ástkær móðir, tengdamamma og amma okkar  lést 19. október eftir fremur snarpa og harða baráttu við krabbamein.  Maður veit varla hvernig hægt sé að orða þetta vor, sumar og haust - sumt er bara án orða og það eina sem ég kann að segja er ... ,,svona er lífið .. og endalok þess". 

Lífið breytist og verður ekki eins og áður - en yljum okkur við minningar. 


Við þökkum fyrir auðsýndan hlýhug og samúð af öllu hjarta. 


Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla, friðsældar og friðar um ókomna tíð. 
Höldum í minningu horfinna ættingja og vina og tökum brosandi mót hækkandi sól. 

kær kveðja úr Skarði
Sigurður
Vilborg
Ástráður
Anna
Sigurlinn
Magnús
Hrafnkell
og 
ferfættir vinir. 




23.12.19

Það er ánægjulegt að setjast niður og semja annál - þetta er jú að verða eitt af venjum jólanna; að skrifa jólakveðju á meðan Bubbi syngur (gólar) í útvarpinu.  Hér eru kertaljós allt um kring, börnin skreyta jólatréð og við maulum konfektmola af óræðum uppruna.
Ástráður okkar og Anna kærastan hans útskrifuðust frá Menntaskólanum á Laugavatni. Það  var mikið hátíðleg athöfn. Þau störfuðu bæði við góð og gagnleg störf í Búrfelli í sumar og mér til mikillar ánægju þá var hægt að plata Önnu á hestbak með mér í sumar - hún er sannarlega upprennandi félagi ! 
Og síðan komu lömbin .. sem betur fer .. segi ekki meir eftir hrakfarir síðasta árs.. Gráhærðar hrokkinhærðar því ég er komin með örfáar skjátur í Feldfjárræktun Þær veita jú afar háan gleðistuðul í exelskjali sauðfjárræktarinnar.
Sumarið var okkur gott; sól og blíða lék við okkur bændur og búalið en heilsu Jóa mágs var ekki eins fyrir komið - krabbameinið sem var nú nýuuppgötvað dró úr honum allan mátt. Það var erfitt að horfa upp á annars lífsglaðann og hláturmildan mann missa máttinn. 
Með vorinu koma folöldin - okkar helsta vonarstjarna, hann Skýfaxi sem Sigurlinn eignaðist fyrir löngu með hestakaupum, kom í heiminn - hann er ennn töltandi folinn.
Hrafnkell Flóki spilaði knattspyrnu af krafti í Vestmannaeyjum á Pollamóti - á meðan fjölskyldan fór í hina árlegu Krakkahestaferð inn að Kletti. 


Þann 26.júlí lést hann Jóhann okkar eftir stranga baráttu við krabbamein. Við minnumst hans tíðum og við heyrum hlátur hans enn hljóma. 
En svo heldur lífið áfram. Við hjónin fórum með blendnum huga í hestaferð - en sem betur fer með okkar allra bestu vinum og við trúum því að Jóhann hafi verið með okkur allan tímann, hann var allavega með í okkar huga. 
Hestaferðin sjálf var einstök, hestaferðirnar eru alltaf sérlega skemmtilegar- en þessi var bara einhvernvegin sérstök. Við þökkum kærlega fyrir vinskapinn. 


Lífið heldur áfram, eins og straumþung á, skólinn tekur við með haustinu, Ástráður hóf nám við vélvirkjun við Borgarholtsskóla og flutti til höfuðborgarinnar með Önnu sinni, Sigurlinn fór á sitt annað ár í Menntaskólanum á Laugavatni, Magnús í 7. bekk og Hrafnkell í 5. bekk í Þjórsárskóla - það er nóg að gera hjá þessum kennurum .. 

Síðan tóku fjallferðir við - það er eins gott að eiga nóg til að fjallhrossum í þessu ati okkar. Ástráður og ég fórum í fjallsafn og Sigurður í eftirsafn (þar að auki klöngraðist ég í klaka og vindi í eftirleit .. er ennþá að brjóta frostið úr kinnunum eftir þá ferð). 
Sigurlinn okkar heldur áfram að koma okkur á óvart með einstaklega góðu lagavali sínu  - og við þreytumst ekki á að hlusta með henni á hennar tónlist (Bowie, Sting, Dylan ..) 
Og Magnús brillerar með myndavélinni sinni - þið ættuð að kíkja á hann á instagram með því að smella hér
Við óskum ykkur allra gleðilegra jóla og farsæls komandi árs og þökkum svo innilega fyrir liðin ár kæra frændfólk og einlægir vinir. 
Hlökkum til að sjá ykkur sem fyrst! 
Vilborg
Sigurður 
Hrafnkell
Magnús
Sigurlinn
Ástráður og Anna <3 







23.12.18

Kæru vinir og ættingar nær og fjær. 

Nú er enn eitt árið að renna sitt skeið og að vanda sendum við ykkur myndakveðju í stað hefðbundinna jólakorta. 
Vetur konungur heilsaði með fannfergi síðasta vetur .. reyndar bara í nokkra daga en það kom samt smá snjór. 


Mögulega galdraði Magnús Arngrímur snjóinn í burtu .. hugsanlega alveg óvart .. maður veit ekki vel. Hann að minnsta kosti æfir sig af kappi í alls konar töfratilraunum. 
Lagt var af stað í kosningar - sveitastjórnakosningar og feðgar hér á bæ tóku báðir virkan þátt með setu á lista. Það er skammt frá að segja að sonurinn tók þessar tilraunir föðursins í nefið þrátt fyrir afar skemmtilega kosningabaráttu  !

Mynd frá Jóhanna Lilja Arnardóttir.

Svo hófst sauðburður .. eða ekki. Hrúturinn var víst eitthvað slappur og það komu lömb á stangli fram að hundadögum. Okkur hér fannst þetta ekkert sérstaklega fyndið - en allir aðrir í sveitinni skemmtu sér vel við að spyrja okkur hvernig sauðburður gengi ..? 
Okkur til mikillar gremju þá var ekki ein einasta skjáta sett á fjall, ekkert fé frá Skarði var dregið í réttum og sárafáum lömbum slátrað um haustið.  Við ákáðum því að taka þetta með trompi með því að tappa nokkrar kindur núna í desember og fá sérvalið sæði frá úrvalshrútum af sæðingastöðinni, fá okkur fagurlitaðann lambhrút og annan þaulvanan spekingslegan hrút. Það hlýtur að verða skemmtilegt vor!


En merarnar og graðhestarnir klikkuðu ekki og stórmyndarleg folöld köstuðust. Þau eru ávallt miklar gleðisprengjur og veita yl í hjarta. 


Og svo er það hann Ástráður ..  hann er kominn með bíladellu. Við vitum ekki alveg hvaðan hún er komin .. allavega frá hvorugum foreldranna. Hann er á sínu lokaári á Laugavatni og stefnir á vélvirkjanám í Fsu að því loknu og síðan í vélaverkfræði í HR. Að því gefnu að hann hafi ekki klárað allan mögulegan aur í varahluti. 
Hún Anna, kærastan hans, hefur vonandi einhvern hemil á þessu .. en maður veit ekki .. hann nefnilega seldi volvoinn og keypti sér gamlan Bronco 2 (árgerð 1988 .. með yfir 7 eigendur- bara svo það komi fram) .. sem er ennþá best geymdur inní bílskúr... 


Krakkahestaferðin var með styttra móti þetta árið .. bókanir í Klett fóru forgörðum .. en við gerðum bara gott úr þessu og við hin fullorðnu útbjuggum flókinn ratleik um fjalllendi Skarðs með bara nokkuð ágætum árangri. Það skein sól um aftan. 


Að venju töpuðu svilarnir sér í fíflagangi - og þessi mynd er sýnir bara brotabrot af uppátækjum þeirra. Þeir eiga líka að minnsta kosti tvo afar dygga aðdáendur sem flissa bara og taka fullan þátt í þessu veseni þeirra. 



 .. já það komu aftur lömb .. 3 vikum seinna .. 

Við fórum líka í ferðalag .. við systur .. með makana og börnin - austur á firði. Þar sáum við svo sannarlega margt fallegt. Maður má kannski ekki endurtaka það .. en einu sinni heyrði ég mann segja að fjöllin á suðurlandinu væru eins og kúladellur miðað við fjalladýrðina fyrir austan. 



Við fórum líka í hestaferð .. til að finna gersemar í grendinni - maður þarf ekki að fara svo langt til að finna náttúruperlur og njóta samvista við afar skemmtilegt fólk og hesta. 


Að venju dugar okkur ekki að fara í hestaferð. Ástráður Unnar er einnig orðin helsjúkur af fjallferðabakteríunni, Gnúpverjar nutu góðs af hans liðsinni þetta árið í fjallsafni, mamman fór með Flóamönnum í fjallsafn, pabbinn í eftirsafn með Gnúpverjum, og mamman aftur með Flóamönnum í eftirleit. 

En í millitíðinni skruppum við gömlu í kóngsins Köben með vinum okkar S&E og Sigurður hitti loks pennavin sinn til 40 ára, Bono sjálfan og U2 hljómsveitina sem hann syngur svo kröftulega með. 


Við eigum svo mikið af afskaplega góðum vinum og allar helgar í haust voru uppbókaðar í alls konar mannfögnuði með vinum okkar.  Við fórum meðal annars í mjög skemmtilega ferð á Akureyri og nágreni.

Hann Hrafnkell okkar Flóki er orðinn heltekinn fótboltakappi. Hann er búinn að skjóta niður útiljósið og hitamælinn, það eru heimasmíðuð mörk um alla koppagrundir og maður veit alltaf hvar hann er að finna því maður bara hlustar eftir boltahljóði. Hann æfir knattspyrnuna af krafti og þekkir orðið öll heimsins lið, alla fána og alla liðsmenn sem hafa gert eitthvað af viti.  En hann spilar ekki bara fótbolta heldur sinnir einnig listrænum hæfileikum. 
Sigurlinn okkar hóf nám í Menntaskólanum á Laugavatni í haust. Hún stendur sig að vanda mjög vel. Reyndar fékk sér lokk í nefið .. en það er um það bil eina tilraun hennar til uppreisnar. Það má benda vegfarendum á að hún fær brátt leyfi til æfingaaksturs... 



 Magnús Arngrímur sinnir enn töfrum og töfrar alla dolfallna. Spilar einnig á píanó og spriklar nú af krafti í frjálsum íþróttum. 


Sjálfstæð starfsemi okkar hjóna blómstrar sem aldrei fyrr því svo virðist sem allir þurfi hús og kjóla- 
 við þökkum af heilum hug !

En senn kemur nýtt ár, sólin er farin að hækka á lofti og veðrið leikur við hvern sinn fingur. Við óskum ykkur öllum velfarnaðar í öllum ykkar verkum og athöfnum og hlökkum til að hitta ykkur á nýju ári. 

Jólakveðjur frá Skarði


Hrafnkell Flóki
Magnús Arngrímur
Sigurlinn María
Ástráður Unnar
Vilborg María
og 
Sigurður Unnar. 





23.12.17

Enn eitt árið að renna sitt skeið og maður horfir tilbaka - fullur auðmýktar og þakklætis - jafnvel orðin frekar væmin...

en það gengur allt samkvæmt hefðbundinni dagskrá - vinnan og bústofninn.., börn í skóla.., hross á húsi..  og við afrekuðum nokkuð sem við höfðum aldrei áður gert - að fara ríðandi yfir Stóru-Laxá í febrúar ! það er afrek (og máske merki um hlýnunarskeið í jarðarsögunni..)
en svona .. ykkur að segja þá var hún ekki fær aftur fyrr en um hefðbundin tíma í mai. Það má kannski segja að vatnaþrá frúarinnar hafi hitt á góðan dag í ánni ..eða hvað?

Okkar hjartfólgna Sigurlinn þurfti því miður að gangast í gegnum afar erfiða aðgerð í apríl - hún er með erfðatengda hryggskekkju og var hryggurinn verulega skakkur.  En þó að aðgerðin hafi verið erfið og vart lýsandi fyrir þá sem þekkja lítið til - þá gekk hún mjög vel og eftir stendur Sigurlinn svo til teinrétt og orðin stærri en mamma sín.
Sigurlinn er einstakur töffari og auk aðgerðar sem hefði bugað okkur mörg, þá rakaði af sér nánast allt hárið, gengur um með snúð í hári og ræðir, með áherslum, við foreldra sína um óréttlæti heimsins, málefni minnihlutahópa og skammast yfir þátttöku okkar í hlýnun jarða.

En svo fæddust lömbin og vorið var þá sannarlega komið - góður tími að vanda.  Síðan komu folöldin og eins og lög gera ráð fyrir þá er maður vakinn og sofinn að allt gangi vel og þetta litla nýja líf geti lifað og dafnað, leikið sér og spriklað !
En svo fengum við þá flugu í kollinn að byggja við húsið .. höfðum síðasta haust steypt nokkuð snotura stétt sem átti að vera snyrtileg reiðhjólageymsla og ruslageymsla .. en eftir einfaldar samningaviðræður þá varð það úr að vinnustofa Híalín stækkaði um helming, Verkfræðistofa Sigurðar varð að veruleika og nú loksins er kjallarinn að láta ljós sitt skína.

Mikið afrek sem við erum svooo ánægð með - og það hefur aldrei verið eins mikið að gera á silkiprents- verkstæði Híalín. Ég þakka mikið vel. 


Eins og undanfarin ár fórum við í stórgóða hestaferð með börnin inn að Kletti -  eftirminnanleg helgi og börnin fóru brosandi heim - jafnvel skælbrosandi !
Og að sjálfsögðu fórum við í hestaferð - mikið - mikið góð ferð að vanda, einstaklega vel heppnaðir ferðafélagar - mikið hvað þetta var gaman ! 


Áður en skólinn og allt það byrjaði - þá hjálpuðum við Nonna frænda og Siggu að girða í kringum ættaróðalið Hnausakot. Við fórum líka í bíltúr, átum ís, skoðuðum hestana hans Helga í Huppahlíð, spiluðum á spil og gerðum að gamni okkar.  


og svo tekur hin hefðbundna ..(verulega íþyngjandi) rútína haustsins við  - en sem betur fer er hún brotin upp með hinum stór-skemmtilegu fjallferðum. Að þessu sinni fór Ástráður með mömmu sinni í Austurleit. Hann hefur ekki ennnnn sagt hvort honum finnist skemmtilegra/auðveldara/erfiðara/áhugaverðara að fara með Flóamönnum eða Gnúpverjum. Segja má að málefnið sér annsi heitt á heimilinu. En alls voru farnar fjórar fjallferðir af heimilismönnum því Sigurður bóndi fór í eftirsafn og eftirleit á Gnúpverjaafrétti og Vilborg bóndi fór auk fjallsafns, í eftirleit á Flóamannaafrétti.


Á haustin eru hin hefðbundnu gorverk og eins og eitt tryppi, nokkur lömb og tvö naut fóru undir græna torfu bara með haus og dindil/hala/tagl. 

Æj... svo vorum við plötuð til Salzburg.. við hin fullorðnu og skildum börnin eftir. Sáum glás af jólaljósum, áttum dásamlegar stundir í svo góðum vinahóp. 

Börn eru alltaf börn - standa sig með sóma og prýði. Ástráður stundar nám við Menntaskólann á Laugavatni og ennþá í píanónáminu við tónlistarskólan .. man ekki lengur hvaða stig hann kláraði í vor - það var amk vel að verki staðið. Hann syngur af krafti og spilar að auki undir hjá kórfélögum sínum á Laugavatni - uppselt á tónleika hvað eftir annað hjá þeim félögum. 

Sigurlinn er hjartahlý og dugnaðarforkur í skólanum. Varð öllum að óvara -amma núna í desember þegar litla saklausa kisan hennar - hún Rúsína -eignaðist einstaklega krúttulega kettlinga í desember. Við óttumst mest að Jólakötturinn hafi verið snemma á ferðinni. 

Maggi heillaðist af töfrabrögðum núna upp á síðkastið - gerir ekki annað en að plata okkur með alls konar stórsniðugum brellum. Þar að auki gekk hann í skátana í haust, lærir vel og samviskusamlega í skólanum og spilar að auki bara nokkuð vel á píanóið. 

Hrafnkell er frakkari en flestir á heimilinu þegar hann kemst á hestbak, finnst hrossin fara frekar hægt og skilur ekkert í því af hverju við ríðum ekki stökk hverju einustu mínótu. Hann æfir nú af kappi körfubolta á Flúðum og nýtir hverja stund til að æfa sig í boltaleika - öllum hinum heimilismeðlimum til "mikillar" ánægju. 

Verkfræðistofa Sigurðar dafnar eins og sóley í haga og silkiprentstofa Híalín sér vart úr augum fyrir ótrúlega spennandi verkefnum.  Við þökkum vinum og viðskiptavinum sérstaklega !

Við sendum ykkur öllum sérlega góðar jólakveðjur - þökkum einstaklega góðar samverustundir kæru vinir og ættingjar - hlökkum til að hitta ykkur sem fyrst. 
Gleði og friður
kær kveðja
Vilborg, Sigurður
og börn
Skarði